Í tilefni af 10 ára afmæli Vinnuvistfræðifélags Íslands árið 2007 afréð stjórn þess að efna til verðlaunasamkeppni fyrir háskólaverkefni á fræðasviði félagsins. Um árlegan viðburð verður að ræða. Þannig vill félagið auka veg og vanda vinnuvistfræði (e. ergonomics) innan háskólasamfélagsins.
Í samvinnu við systurfélög á Norðurlöndum var afráðið breyta reglum fyrir norrænu stúdentaverðlaunin sem veitt hafa verið á hverju ári um árabil. Hliðstæð samkeppni fór fram árið 2007 í fyrsta skipti í hverju hinna landanna. Vinningshafar hverrar þjóðar keppa síðan um norrænu verðlaunin á sameiginlegri ráðstefnu sem Norðurlöndin skiptast á að halda.
Leitað hefur verið eftir stuðningi atvinnulífsins og var Trivium ráðgjöf styrkaraðili árið 2008 og Síminn árið 2009. Fá þeir bestu þakkir fyrir.