6.9.2009 17:50:00 |
Höf.: alda
Ljósmyndasamkeppni Vinnueftirlitsins
Í tilefni vinnuverndarvikunnar 2009, heldur Vinnueftirlitið ljósmyndasamkeppni.
Óskað er eftir myndum af einhverju í vinnuumhverfinu sem er til fyrirmyndar. T.d. myndir af húsnæði, öryggisbúnaði, léttitækjum, merkingum, persónuhlífum eða einhverju tengdu forvörnum, slysavörnum og líðan starfsmanna á vinnustað.
Allt sem er til fyrirmyndar í vinnuumhverfinu kemur til greina sem myndefni.
Allir sem hafa gaman að því að taka myndir geta tekið þátt í ljósmyndasamkeppninni.
Myndirnar verða að vera teknar af sendanda sjálfum en mega vera gamlar.
Þátttakendur mega senda eins margar myndir og þeir vilja.
Verðlaun verða veitt á vinnuverndarráðstefnunni 20. október 2009 á Grand Hóteli Reykjavík.
Fyrstu verðlaun: Canon EOS 1000D SLR myndavél með EF-S 18-55mm linsu
Önnur verðlaun: CanoScan 5600F skanni
Myndir sendist í jpg-sniði RGB til: samkeppni@ver.is , ásamt upplýsingum um nafn, heimilisfang og símanúmer.
Skilafrestur: 12. október 2009
6.9.2009 17:50:00 | Höf.: alda