|
Nú er heldur betur farið að styttast í hina árlegu NES ráðstefnu sem haldin verður í Stavanger í Noregi þann 6.-8.- september nk. Ráðstefnur NES eru orðnar vel þekktar á meðal alþjóðlegra ráðstefna á sviði vinnuvistfræðinnar, sem sést best á metnaðarfullri dagskrá og vel þekktum lykil-fyrirlesurum. Í ár eru um 70 fyrirlestrar ásamt vinnusmiðjum sem gagnlegt er að taka þátt í.
|
|
Aðalfundur Vinnuvistfræðifélags Íslands var haldinn 29. apríl sl. í húsnæði Actavis, Dalshrauni 1, Hafnarfirði. Fundurinn hófst á kynningu á fyrirtækinu og sá Leó Sigurðsson öryggis-, heilsu- og umhverfisstjóri hjá Actavis um kynninguna. |
|
Stjórn Vinnís minnir á aðalfundinn sem haldinn verður nk. fimmtudag frá kl.17-19 í húsnæði Actavis, Dalshrauni 1, 5. hæð. Sjá meðfylgjandi dagskrá og lagabreytinar sem teknar verða fyrir. |
|
Aðalfundur Vinnís 2010 Aðalfundur Vinnís verður haldinn 29. apríl nk. frá kl. 17:00-19:00 í boði Actavis, Hafnarfirði.Léttar veitingar verða í boði þeirra með kynningu á fyrirtækinu. Kæru Vinnís félagar, við vonumst til að sjá sem flest ykkar! |
|
Vinnís vill minna á að lokadagur til að senda inn umsóknir vegna Stúdentaverðlauna Vinnís er 1. apríl nk. |
|
Vinnís vill minna á næstu NES ráðstefnu sem haldin verður í Stavanger í Noregi, 6. – 8. september nk. Lokadagur til að senda inn erindi hefur verið framlengdur til 15. april nk. |
|
Norræna vinnuverndarnefndin auglýsir eftir styrkumsóknum á sviði vinnuverndar fyrir árið 2010 - viðbótarúthlutun Skilafrestur umsókna er 10. febrúar 2010. |
|
Samskipti manns og tölvu
Ráðstefnan NordiCHI 2010 verður haldin á vegum Háskóla Reykjavíkur og Háskóla Íslands í Reykjavík, 16. - 20. október 2010 |
Be part of the unique experience! Share your expertise and get recognition among your colleagues and peers at the 2010 event in Miami, Florida. |
Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society